Takk Karl

Þú ert nú meiri dugnaðarforkurinn að eiga varasjóði í útlöndum og kemur með peningana þína heim til hjálpar fyrir seðlabankann. 

Hvernig færum við að án þín? 

Kveðja Jóna Kolla...

Ps:  Er seðlabankanun sama hvaðan peningarnir koma? 

Maður spyr sig


mbl.is Karl Wernersson kemur með gjaldeyri heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er ekki hissa á því

Ef kona nær sér í mann sem er giftur þá mun þetta loða við hana, að vera hjónadjöfull.

Svo á hún að vera kvíðin, það fylgir oft sama hlutverk fyrir hana. 

Ef maðurinn gerir það með þér, þá mun hann gera það við þig líka... 

Menn sem halda framhjá hætta því yfirleitt ekki, þeir fara svo að halda framhjá viðhöldunum. 

Ég býst við að svipað eigi sér stað hjá konum, þó ég hafi ekki séð það á prenti alveg nýlega...


mbl.is Föst í hlutverki hjónadjöfuls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrýtið að flytja fisk til Íslands

Það er eins og að flytja timbur til Finnlands.

Það er eins og að flytja olíu til Noregs.

Það er eins og að flytja hrísgrjón til Kína.

 Æ, mér datt þetta bara í hug....


mbl.is Íslendingar borða innfluttan fisk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gullið til Íslands

Ég óska þessum unga manni til hamingju með það að vinna gullverðlaun á Ólympíuleikum fatlaðra í dag.

Þessi ungi maður er til fyrirmyndar. 

Ég vona að hann fái móttöku við hæfi þegar hann kemur heim til Íslands að loknu móti....


mbl.is Jón Margeir meistari - myndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar borga þeir skatta?

Eru ekki öll skip Eimskipa skráð erlendis?

Í umræðu um daginn, kom í ljós að skattar af rekstri skipanna rennur ekki í ríkissjóð.

Svo voru þeir að heimta að löggæsla væri aukin við athafnasvæði þeirra, geta þeir ekki sótt löggæslu til þeirra landa sem skipin þeirra eru skráð á? 

Maður spyr sig...


mbl.is Rekstarhagnaður Eimskips nam 19 milljónum evra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Raflostbyssa?

Er ekki kominn tími á það að gefa þessu vopni íslenskt heiti? 

Mér finnst raflostbyssa vera frekar erfitt orð, svona til daglegrar notkunar.

Stuðbyssa, eða rafbyssa finnst mér hljóma betur. 


mbl.is Með raflostbyssu á Menningarnótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýlegur landnemi, og frekar ógeðfelldur

Fyrir tveimur vikum síðan tóku dætur mínar eftir einhverju skrítnu úti í garði hjá mér.

Dóttir mín spurði mig hvort ég hefði eitrað fyrir fíflunum í garðinum, flestir fíflarnir voru með svartan hring niður við grasvörðinn.

Ég tók mynd af þessu og sendi fyrirspurn á Fésbókinni, innan stundar var svarið komið. 

pöddur 002

Svarið var Fíflalús, fannst víst hérna á Íslandi fyrir 4 eða 5 árum síðan. 

Upp úr miðjum ágúst má ég eiga von á því að lýsnar fari að skríða upp húsið hjá mér, og út um allt.

Oj bara


Æsispennandi leikur

Þegar ég horfði á handboltaleikinn á milli Frakka og Íslendinga skemmti ég mér svo vel.

Leikurinn var spennandi næstum frá fyrstu mínútunni, allt fram á síðustu mínútu. 

Ég óska okkur Íslendingum til hamingju með þennan frábæra sigur á Frökkum á Ólympíuleikunum. 

Ég hlakka til að horfa á liðið okkar í næstu leikjum, strákarnir okkar eru æðislegir.


mbl.is 100 myndir frá sigrinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins

Það er löngu tímabært að fá smá veðrabreytingar.

Ég er orðin leið á endalausum hita og sólskini.

Landið okkar þarf á smá vökvun að halda, við fólkið líka.

Loftið hefur verið svo þurrt að margir eru með ertingu í nefi, hálsi og augum.

Ég hlakka til að anda að mér almennilegu lofti, með smá rakastigi.

Svo er ég líka orðin leið á að vera alltaf í stuttbuxum og hlýrabol.

Ég er svo heitfeng að ég þoli illa hita yfir 15°, loksins verður líft hérna :)


mbl.is Með dýpstu lægðum í júlí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er tilbreyting að lesa svona frétt :)

Heimagemlingarnir voru með læti, yfirleitt sér maður fréttir frá bæjum úti á landi þar sem fylgir sögunni að aðkomumenn hafir framið glæpina...

Mér finnst það sérstaklega eiga við Akureyri, þar virðast bara aðkomumenn/konur fremja glæpi.

Þannig var það allavega á árum áður...


mbl.is Heimagemlingarnir eins og apakettir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband