Lögreglan þarf meira fjármagn

Það hefur sýnt sig í gegnum árin að fyrirbyggjandi aðgerðir lögreglunnar skila miklum árangri þegar eftirliti með umferð.  Ég er búin að vinna kvöldvinnu í 20 ár og er ég oft seint á ferðinni í umferðinni. 

Á árum áður var ég oft stöðvuð og ökuskírteini athugað og ég látin blása í blöðru og stundum þurfti ég ekki að blása neitt.  Núna er það viðburður ef ég sé lögreglu í umferðinni á nóttunni. 

Ég held að fjölga þurfi lögreglumönnum/konum og auka fjárframlög til löggæslunnar.  Svo þarf líka að bæta fjárframlög til Landhelgisgæslunnar, það ætti að vera forgangsatriði að löggæsla á landi og sjó sé í lagi hérna á Íslandi. 


mbl.is Hætta í Þingholtunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband