Þjófavarnir á tækniöld.

Ég skrapp inn í Kringlu með systur minni og keypti tvær jólagjafir, sem er ekki í frásögur færandi.  Í fyrstu búðinni keypti ég gjöf handa pabba mínum.  Svo var gengið á milli búða og systir mín keypti nokkrar gjafir líka.  Þegar ég og systa komum við í sömu búðinni og ég keypti gjöfina handa pabba pípti í hliðinu!!! píp píp á leiðinni inn í búðina sem betur fer,  og það pípti ekki í mínum pokum, bara hennar.  Þegar málið var athugað var ein flíkin sem hún keypti í 17 ennþá með þjófavörninni á, ekki pípti í hliðinu á 17 þegar við fórum út úr henni og ekki heldur þegar við komum aftur til að láta fjarlægja þjófavörnina!!  Er þetta í lagi???Þegar ég kom heim og ætlaði að pakka in gjöfinni til pabba sá ég að þjófavörnin var ennþá hangandi á flíkinni sem ég keypti!!! Ég verð að fara aftur í Kringluna á morgun og láta fjarlægja þjófavörnina góðu!!??  Sem greinilega er ekki að skila sínu hlutverki, að pípa þegar farið er í gegn um hliðin á búðinni.!! Ein frekar pirruð Woundering

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

.Þetta er óþolandi Passaðu að vera með nótu. Ég sem ætlaði að fara að leita að barnum þínum og fá mér öllara. Fór baraí náttkjólinn í staðinn

Hólmdís Hjartardóttir, 15.12.2007 kl. 03:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband