Skemmtileg móttaka hjá okkur þjóðinni

Ég var stödd á Laugaveginum í kvöld til þess að taka á móti strákunum okkar, síðan var gengið að Arnarhóli þar sem strákarnir fengu aldeilis góðar móttökur.  Ég man ekki eftir svona miklum mannfjölda á Arnarhóli, og er ég nú eldri en tvævetur.  Ég var þarna með tveimur dætrum mínum og skemmtum við okkur vel.  Takk fyrir okkur
mbl.is Orðuveiting á Bessastöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

þetta var flott séð úr minni stofu á sjónvarpið

Hólmdís Hjartardóttir, 28.8.2008 kl. 02:32

2 Smámynd: Drífa Björk Guðmundsdóttir

Þetta var alveg stórkostlegt! Sem Íslendingur búsettur í Danmörku, horfði ég á þetta í beinni útsendingu á netinu og það var ekki laust við að þjóðarstoltið í Íslendingahjartanu væri við að springa. Þessar móttökur voru engu síðri en þegar Danir komu heim til Danmerkur sem Evrópumeistarar. Og já reyndar mun íburðarmeiri, þar sem 10% íslensku þjóðarinnar var viðstatt og þar komu Danir ekki nálægt okkur, enda engin hálf milljón Dana á Ráðhústorginu þegar danska landsliðið kom heim.

Til Hamingju Ísland! Ég er sammála Óla, við getum verið stolt af þeirri gjöf að fá að fæðast á Íslandi, það hefur sýnt sig svo vel í sameiningarkrafti landans. Sameinuð stöndum við bæði í blíðu og stríðu!

Drífa Björk Guðmundsdóttir, 28.8.2008 kl. 06:16

3 Smámynd: Tína

Mér fannst þetta frábært í alla staði. En skemmtilegast fannst mér að sjá svipinn á Óla Stef þegar forsetinn setti á hann stórriddarakrossinn

Eigðu alveg yndislegan dag ljúfust.

Tína, 28.8.2008 kl. 07:54

4 Smámynd: Hrafnhildur Björk Jónsdóttir

Bara flott að sjá úr sjónvarpinu, knús

Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 28.8.2008 kl. 14:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband