Ætli þetta virki?

Það voru mögnuð orðin hjá henni Evu Hauksdóttur í þessari vargastefnu.  Ef svona galdur virkar þá fáum við væntanlega fljótlega að sjá árangurinn.  Ég mætti á þjóðfundinn á Arnarhóli ásamt frumburðinum.  Við erum friðsamir mótmælendur og vorum við farnar þegar ráðist var til inngöngu í Seðlabankann.  Ég var smá hissa að sjá ungt fólk með sundgleraugu á mótmælafundinum, en svo allt í einu þegar ég skoðaði fréttirnar á ml.is í kvöld skildi ég hversvegna unga fólkið var með sundgleraugun, það var náttúrulega fólkið sem fór inn í seðlabankann og var tilbúið að mæta piparúða lögreglunnar.  Shocking    Ein friðsöm, sem vill spillinguna burt
mbl.is Vargastefna við Stjórnarráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Beturvitringur

Varstu búin að sjá þetta?

Beturvitringur, 2.12.2008 kl. 02:27

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

JÁ þau sniðug að vera með  sundgleraugu

Hólmdís Hjartardóttir, 2.12.2008 kl. 02:35

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Nei, takk fyrir þetta myndband.  Ég var að vinna í allt kvöld. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 2.12.2008 kl. 02:37

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sjáumst á laugardaginn......með sundgleraugu

Sigrún Jónsdóttir, 2.12.2008 kl. 07:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband