Þetta eru dúllur sem ég hef heklað undanfarna mánuði, ég á ennþá eftir að hekla u.þ.b 100 stykki. Svo hekla saman allar 150 dúllurnar. Þá á ég flott teppi til þess að hafa yfir sér þegar horft er á sjónvarpið.
Það fara mjög margar dokkur af lopa í þetta teppi. Ég er búin að kaupa allt efni í teppið, kannski 20 dokkur ég er ekki með töluna á hreinu gæti alveg verið aðeins minna. Nú vantar mig bara heklunál númer 4,5 og ég get byrjað að hekla aftur. Eða ég gæti leitað af heklunálinni minni hérna heima hjá mér.
Athugasemdir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 12.9.2009 kl. 01:18
Flottar dúllur. Ég heklaði einmitt mjög litríkt barnateppi úr svona dúllum. Spennandi að sjá endaútkomuna
, 13.10.2009 kl. 12:45
Þetta verður flott teppi!
Hrönn Sigurðardóttir, 30.11.2009 kl. 11:02
Þetta finnst mér vera æðislegir litir og teppið fallegt. Þetta er sko alvöru sjónvarpsteppi
Christine Einarsson (IP-tala skráð) 23.3.2010 kl. 09:41
fer ekki mikið garn í þetta?
Christine Einarsson (IP-tala skráð) 23.3.2010 kl. 09:41
þetta verður æðislegt sjónvarpsteppi
Sigrún Óskars, 23.3.2010 kl. 18:11
Það fara mjög margar dokkur af lopa í þetta teppi. Ég er búin að kaupa allt efni í teppið, kannski 20 dokkur ég er ekki með töluna á hreinu gæti alveg verið aðeins minna. Nú vantar mig bara heklunál númer 4,5 og ég get byrjað að hekla aftur. Eða ég gæti leitað af heklunálinni minni hérna heima hjá mér.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.3.2010 kl. 01:40