Forhert hórumamma

Þessi kona er greinilega með einbeittan brotavilja, af hverju selur hún ekki sjálfa sig?  Afhverju vill hún bara selja aðrar konur?  Ég hef séð ýmsar myndir af þessari dæmdu konu, hún virðist hafa dýran smekk, og virðist ekki skammast sín fyrir framan myndavélar fjölmiðlamanna. 

Þessi nýjasta frétt af frú Ncogo, er ótrúleg.  Hún reynir líka að misnota samfanga sína, tryggja sér þjónustu þeirra eftir afplánun.  Ég er fylgjandi því að kannski ætti að endurskoða refsilöggjöfina og tryggja að svona raðglæpamenn hljóti þunga dóma. 


mbl.is Bauð samfanga vinnu við vændi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hann er vand rataður þessi blessaður meðal vegur.Er ánægð með Rögnu dómsmálaráðherra,hún bókstaflega ber af í stjórnarliðinu. Henni er treystandi il að knýja fram harðari refsilögjöf,sem virðist ekki vanþörf á,við sívaxandi glæpastarfsemi.

Helga Kristjánsdóttir, 31.3.2010 kl. 03:06

2 Smámynd: Sigrún Aðalsteinsdóttir

Konan er glæpakvendi og kann ekki að skammast sín.  Samt finnst mér skrýtið að hún hafi komist í færi við samfanga sína.  Ég hélt að gæsluvarðhald þýddi algjöra einangrun.

Sigrún Aðalsteinsdóttir, 31.3.2010 kl. 23:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband