Við höfum öll rangt fyrir okkur

Jóhanna veit betur en við fólkið hún segir að ríkisstjórnin hafi í raun bjargað 9000 heimilum frá vanda og 70-80 þúsundum manna frá alvarlegum skuldavanda.  Það vantar bara að Jóhanna segi eins og Ingibjörg Sólveig Gísladóttir "þið eruð ekki þjóðin"

Mér finnst þessi frétt hérna á mbl.is frekar ótrúverðug.  Þrátt fyrir það finnst mér að þessi stjórn ætti að segja af sér, og boða til kosninga í haust.  Eða þá að hann Ólafur Ragnar Grímsson stöðvaði þessa vitleysu, ef hann getur það. 

Bara það að stjórnin ætlar að boða til stjórnlagaþings, til þess að tryggja stjórnarskrárbreytingar í sína þágu með "handvöldu " fólki á þingið, það gerir stjórnlagaþingið algjörlega ónýtt.  Við fólkið eigum að halda okkar eigin stjórnlagaþing, þar sem handahófsval úr þjóðskrá ræður hverjir setjast á þingið.  Það er eina leiðin að mínu mati...

 


mbl.is Hafa komið til móts við skuldavandann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Jóhanna, Steingrímur, Gylfi og Már eru búin að skrifa undir viljayfirlýsingu til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um að borga IceSave lágmarkstryggingu með vöxtum, sem og að ekki verði lengra í úrræðum til að mæta skuldavanda heimilanna en þegar hefur verið gert. Þetta stendur í plagginu svart á hvítu, og því miður virðast þau ætla að vinna eftir því óhikað á meðan enginn stoppar þau.

Guðmundur Ásgeirsson, 9.6.2010 kl. 02:05

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vandinn sem þau hafa bjargað fólki frá er þannig að þeir pína nú fleiri til að borga skuldir sem fólk getur ekki staðið undir til lengdar, einungis er lengt í ólinni og þetta mun fara illa því miður.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.6.2010 kl. 13:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband