Steingrímur segðu af þér

Hvernig dirfist hann að tala svona? 

Hvernig dettur honum í hug að við þjóðin getum samþykkt IceSlave skattinn til Breta og Hollendinga?

Við þjóðin fáum ekki að vita hvar hundurinn liggur grafinn, hversvegna eigum við að samþykkja IceSlave III án þess að vita allar staðreyndir málsins. 

Ennþá eru stjórnvöld að fara á bakvið þjóðina, með leyndarmálum og trúnaðargögnum sem örfáir hafa séð. 

Ég vil gegnsægi og allt uppi á borðum, þessvegna ætla ég að segja NEI við þessari ánauð sem sitjandi stjórn vill þröngva upp á okkur þjóðina. 


mbl.is Icesave-málið ekki það stórt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Heyrði Tryggva Herbertsson segja í dag,að Icesave-innlegg hefðu (alltént hluti þeirra),farið í L.Í á Íslandi. Fengin strax að ,,láni,, til að kaupa illa stödd fyrirtæki í Englandi.(Sem síðan urðu gjaldþrota).Þar voru að verki útrásar-auðrónar okkar,sem við þekkjum af afspurn. Ættum við ekki að fá þetta allt upplýst.

Helga Kristjánsdóttir, 24.2.2011 kl. 01:17

2 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Hvern viltu fá í staðin fyrir Steingrím?

Svanur Gísli Þorkelsson, 24.2.2011 kl. 02:18

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tek undir með þér Jóna Kolbrún burt með þetta lið.  Utanþingsstjórn strax.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.2.2011 kl. 08:34

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Fyrsta manneskjan sem mér dettur í hug er Lilja Mósesdóttir, hún er frambærilegri en Steingrímun...

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.2.2011 kl. 08:51

5 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

SJS í þinginu 2003

Treystum við ekki þjóðinni? Ekki getur það verið vandinn að nokkrum manni í þessum sal, þingræðissinna, detti í hug að þjóðin sé ekki fullfær um að meta þetta mál sjálf og kjósa um það samhliða því að hún kýs sér þingmenn Stundum heyrist að vísu einstaka hjáróma rödd um að sum mál séu svo flókin að þau henti ekki í þjóðaratkvæði. Það er einhver allra ömurlegasti málflutningur sem ég heyri.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 24.2.2011 kl. 09:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband