Bílavandræði, lánsbíllinn er líka bilaður!

Bíllinn minn er búinn að vera bilaður í allavega 2 vikur, gangtruflanir hafa verið að stríða okkur og núna varð ég að skilja lánsbílinn eftir á Eiðisgrandanum, Ég keyrði í poll við Ánanaust á leiðinn heim úr vinnunni og eitthvað hefur blotnað, ég gat látið hann renna í gang nokkrum sinnum en á miðjum Eiðisgrandanum gafst hann upp og ég varð að hringja í táninginn, sem á eina gangfæra bílinn í fjölskyldunni núna.  Hún sótti mig og við verðum að sækja lánsbílinn í fyrramálið, ég vona að hann fari í gang þá. 

Hei og vitið þið hvað börnin voru búin að baka þrjár sortir af smákökum þegar ég kom heim úr vinnunni! Gyðingakökur með kanilsykri, kornflekstoppa og súkkulaðibitakökur allt tvöfaldar uppskriftir.  Jólin nálgast óðum og þá verður nú gaman,  við verðum átta í mat hjá mér, svo klukkan tíu á aðfangadagskvöld koma nánustu ættingjar mínir til mín í heitt súkkulaði og smákökurWoundering  Ein stolt af börnunum sínum


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband