Fyrst St. Jósefsspítali svo hvað?

Ég á náinn ættingja sem er að berjast við krabbamein, á þriðjudaginn var fékk hann hringingu frá Landsspítalanum við Hringbraut.  Hann var afboðaður í lyfjainngjöf, vegna þess að lyfið væri ekki til.  Núna spyr ég er þetta það sem koma skal?  Eða var þetta tilfallandi slys að ákveðið lyf er ekki til, þegar sjúklingar þurfa á því að halda?  Ég vona að ég fái svör við spurningum mínum, hversvegna lyfið var ekki til.  Var það slys, eða kannski sparnaðarráðstöfun? 
mbl.is St. Jósefsspítala lokað hægt og hljótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Kemur stundum fyrir að það vantar lyf......vonandi er þetta ekki sparnaðarráðstöfun

Hólmdís Hjartardóttir, 20.9.2009 kl. 17:04

2 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Einn nàkominn mèr ì baràttu vid sama sjùkdòm. Thetta hefur gerst hjà honum, endurtekid!

Jòna ertu bùin ad henda mèr sem bloggvin?

Einar Örn Einarsson, 20.9.2009 kl. 17:09

3 Smámynd: Sigrún Óskars

ég hef ekki trú að að þetta sé sparnaðarráðstöfun - vona allavega ekki.

Sigrún Óskars, 20.9.2009 kl. 17:18

4 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Takk fyrir !

Einar Örn Einarsson, 20.9.2009 kl. 21:45

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Svo er spurning hvaða áhrif svona tafir á meðferð þýða fyrir krabbameinið??? 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.9.2009 kl. 23:08

6 Smámynd: Rannveig Sigurðardóttir

Jóna mín ,

Þetta er hræðilegt að heyra að fólk sem manni þykir vænt um og berst við þetta fái ekki alla þá hjálp sem hægt er.

Rannveig Sigurðardóttir, 23.9.2009 kl. 18:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband