17.1.2010 | 03:18
Draumórar Steingríms.
Hversvegna liggur svona á því að hefja formlegar viðræður á ný? Á að svipta okkur réttinum til þess að kjósa um IceSlave í þjóðaratkvæðagreiðslu? Mér finnst í rauninni að Steingrímur J. Sigfússon hafi ekki umboð til þess að hefja nýjar viðræður við Bretana og Hollendingana.
Mér finnst að stjórnin ætti að fresta öllu í sambandi við IceSlave og láta þjóðina kjósa um breytingartillöguna sem stjórnarliðar samþykktu með naumum meirihluta á milli jóla og nýárs. Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna á að skoða málin og fara eftir vilja þjóðarinnar. Það er mín skoðun.
Myndu stefna á lægri vexti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já en hvernig stendur þá á allri þessari hylli núverandi ríkisstjórnar ef allir eru svona óánægðir??
Þór Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 17.1.2010 kl. 16:50
Er ekki fínt ef álitleg niðurstaða fæst, án kosninga eða annars "umstangs"?
Eygló, 17.1.2010 kl. 16:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.