16.2.2010 | 01:02
Hvar er bjartsýnin í fréttinni?
Mér virðist hann Steingrímur vera frekar svartsýnn, hvernig hann bar sig illa og var þreytulegur í kvöldfréttunum í kvöld. Það hefur greinilega tekið á hann að standa í öllum þessum lygum. Lygar og feluleikur hafa verið stjórnunarstíll Steingríms í fjármálaráðuneytinu. Er ekki kominn tími á það að hann Steingrímur setjist í helgan stein og láti öðrum eftir stjórnina í fjármálaráðuneytinu?
Mér finnst að ekki eigi að semja um neitt fyrr en þjóðaratkvæðagreiðslan hefur farið fram, þá að vísa málinu til dómstóla og láta þá skera úr um greiðsluskyldu okkar í IceSlave málinu.
Hóflega bjartsýnn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Innilega sammála þér Jóna Kolbrún.
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 16.2.2010 kl. 01:37
Steini setjist í helgan stein? Á kanski heima í grjótinu?? Nú rekum við þau af höndum okkar,myndum þjóðholla stjórn. Ekki reikna ég með að fá að velja,en væri lítill vandi. Vonandi hittumst bráðum.
Helga Kristjánsdóttir, 16.2.2010 kl. 04:08
Sammála ykkur hér. Þetta er komið alveg nóg af lygum og undirlægjuhætti.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.2.2010 kl. 10:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.