18.3.2010 | 21:12
Hækkun fasteignagjalda
Í fyrra voru miklar tilfærslur á fasteignagjöldum aðallega til hækkunnar. Ég bý á Seltjarnarnesi og hækkuðu mín fasteignagjöld u.þ.b 30%. Þegar fasteignamatið er orðið hærra en verðgildi íbúðarinnar þá er eitthvað mikið að. Mér finnst þetta ósanngjarnt, launin mín hafa staðið í stað í marga mánuði. Afborganir af húsnæðistjórnarlánunum mínum hafa líka hækkað verulega. Og að ég tali ekki um lífeyrissjóðslánið, þar eru ekki minni hækkanir á afborgunum.
Það verður erfiðara og erfiðara að standa í skilum með allt sitt. Vonandi verða fasteignagjöldin aðlöguð lækkuðu fasteignaverði. Annað er ekki sanngjarnt.
Athugasemdir
Þar er ég þó sammála. Fáránlegt að horfa á fasteignamatið hækka á sama tíma og íbúðaverðið lækkar. Ekki séns að ég geti selt íbúðina mína á fasteignamatsverði.
, 19.3.2010 kl. 10:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.