10.4.2010 | 01:37
Nýjustu fréttir, ég vil hvetja alla til ţess ađ birta ţessa frétt. Ţá verđa ţeir ađ stefna ţjóđinni
Vegna stefnu Pálma í Fons gegn Svavari Halldórssyni fréttamanni RÚV geri ég hér međ orđ Svavars (fréttatexta) ađ mínum og hvet alla til ađ birta eftirfarandi fréttir (sem ég birti međ leyfi SH) allsstađar ţar sem ţví verđur viđ komiđ:
Frétt 1:
Pálmi Haraldsson notađi skuldaviđurkenningu frá Baugi sem veđ ţegar hann fékk tveggja og hálfs milljarđa króna lán frá Glitni rétt fyrir hrun. Baugur og eigendur hans voru ráđandi hluthafar í Glitni og viđskiptafélagar Pálma. Bankinn hefur ekkert fengiđ greitt og peningarnir eru týndir.
Pálmi Haraldsson í Fons kom víđa viđ í góđćrinu. Hann átti Iceland Express, Skeljung, Securitas, flugfélagiđ Sterling og hluti í FL Group og bresku verslunarkeđjunni Iceland. Međal helstu viđskiptafélaga hans var Jón Ásgeir Jóhannesson.
Hann átti međal annars Gaum og réđi ríkjum í Glitni.
Fons, félag Pálma, átti hlutabréf í Högum og Debenhams sem Pálmi seldi félaga sínum Jóni Ásgeiri í Baugi, snemma árs 2007. Á móti fékk Pálmi skuldabréf á Baug. Allir pappírar virđast hafa veriđ útbúnir í samrćmi viđ lög og reglur. Pálmi fór međ skuldabréfiđ í Glitni og lagđi ţađ ađ veđi fyrir tveggja og hálfs milljarđa króna láni sem hann fékk greitt út í peningum. Á ţeim tíma var Baugur Jóns Ásgeirs í miklum vanskilum viđ Glitni Jóns Ásgeirs, en skuldabréfiđ ţótti samt sem áđur fullnćgjandi trygging. Hlutabréfin hurfu síđar úr Baugi yfir í önnur félög Jóns Ásgeirs en allir gjalddagar voru framlengdir inn í framtíđina. Félögin ţrjú í ţessari fléttu fóru öll á hausinn eitt af öđru, Glitnir, Baugur og Fons. Ţessa sögu má lesa úr lánasamningum, viđaukum og allskyns skjölum sem fréttastofa hefur undir höndum.
Allar skuldaviđurkenningar liggja ógreiddar í búum hinna gjaldţrota fyrirtćkja. Einu alvöru peningarnir í ţessum viđskiptum voru 2500 milljónir króna, sem fóru úr Glitni og í hendur Pálma Haraldssonar, en ţeir peningar finnast hins vegar hvergi.
Frétt 2:
Ekki verđur hćgt ađ ganga ađ Pálma Haraldssyni vegna gjaldţrots Fons, ţar sem hann er ekki í persónulegum ábyrgđum. Kröfur í ţrotabú félagsins nema 38 milljörđum króna og ljóst ađ stór hluti tapast. Pálmi segist geta gert grein fyrir ţví hvađ varđ um tveggja og hálfs milljarđs króna ógreitt lán frá Glitni.
Fréttastofa sagđi frá ţví gćr ađ 2.500 milljónir króna sem Pálmi Haraldsson fékk lánađar hjá Glitni fyrir hrun virđast gufađar upp í flókinni viđskiptafléttu. Lögmađur Pálma hefur hótađ fréttamanni málsókn, verđi fréttin ekki dregin til baka og beđist afsökunar. Pálmi segir ađ féđ hafi veriđ notađ til ađ greiđa lán Fons hjá Landsbankanum og kaup á sjóđsbréfum Glitnis og hefur látiđ fréttastofu í té fćrslunúmer ţessu til sönnunar. Ómögulegt er hins vegar út frá ţeim ađ stađfesta orđ Pálma. Fréttastofa hafđi í gćr eftir heimildarmönnum, sem hún metur áreiđanlega, ađ féđ virđist hafa horfiđ og finnist ekki í ţrotabúi Fons.
Ţeir hafa stađfest ţađ aftur í dag. Lániđ hefur aldrei veriđ borgađ. Af frétt gćrdagsins hefđi mátt skilja ađ Pálmi hafi sjálfur tekiđ umrćtt 2.500 milljóna lán persónulega, en ekki eignarhaldsfélag hans, Fons, sem nú er í skiptameđferđ. Hér međ er áréttađ ađ Fons tók lániđ, en Pálmi var ţar ađaleigandi, annar tveggja prókúruhafa og einn skráđur í framkvćmdastjórn, samkvćmt fyrirtćkjaskrá.
Kröfur í ţrotabú Fons nema um 38 milljörđum króna og ólíklegt ađ nokkuđ fáist upp í almennar kröfur.
Pálmi Haraldsson var hins vegar ekki í neinum persónulegum ábyrgđum og ţví fellur ekki blettur á hans kennitölu viđ gjaldţrot Fons. Hann á enn miklar eignir víđa um lönd í gegnum önnur félög sín.
Fyrirtćkjaveldi Pálma virđist hafa fengiđ góđa fyrirgreiđslu hjá Glitni fyrir hrun. Fréttastofa hefur undir höndum gögn um fjögur lán sem tekin voru frá ţví í desember 2007 og fram á mitt ár 2008.
Samanlögđ upphćđ ţeirra nemur um 22 milljörđum króna. Ţrotabú Glitnis gerir tćplega 24 milljarđa króna kröfu í ţrotabú Fons og fyrirséđ er ađ ţađ muni taka milljarđaskell. Títtrćtt 2.500 milljóna lán hefur aldrei veriđ greitt og féđ finnst ekki í ţrotabúi Fons.
Frétt 3:
Eignarhaldsfélaginu Sundi var tryggt međ leynisamningi viđ Baug ađ ţađ gćti losađ sig viđ fimmtungs hlut sinn í Northen Travel Holding á hćrra verđi en hann var keyptur. Ađ auki fékk Sund sérstaka ţóknun fyrir viđvikiđ, samtals 475 milljónir króna.
Í desember 2006 seldi FL-Group lággjaldaflugfélagiđ Sterling fyrir 20 milljarđa inn í nýtt félag, Northern Travel Holding. Ţađ var í eigu stórra hluthafa Glitnis, seljandans FL, og Fons Pálma Haraldssonar og síđan Sunds, sem var í eigu fjölskyldu Óla heitins í Olís. Hiđ síđastnefnda lagđi til 2500 milljónir og eignađist um 22% í nýja félaginu. Baugur, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, skuldbatt sig jafnframt til ađ kaupa aftur bréfin af Sundi, samkvćmt leynilegum baksamningi. Fons stofnađi svo nýtt félag 2008, M21 sem fékk lán hjá Glitni til ađ kaupa Sunds-bréfin, fyrir 2750 milljónir. Hlutabréfin sjálf voru látin duga sem veđ og lániđ er enn ógreitt. Sund fékk ađ auki sérstaka 222 milljóna króna ţóknun fyrir ómakiđ. Mál ţetta er til rannsóknar hjá yfirvöldum. Fons bólgnađi út og greiddi eigendum sínum rúma fjóra milljarđa í arđ, en Fons, Northern Travel Holdins, Baugur og Glitnir eru nú öll farin á hausinn. Skiptastjóra Fons hefur tekist ađ rekja slóđ milljarđanna fjögurra til Lúxemborgar, en síđan ekki söguna meir. Um ţá snýst eitt fjölmargra riftunarmála sem hann hefur höfđađ. Ţetta má allt saman lesa út úr skýrslu endurskođenda, leynisamningnum sjálfum, lánasamningum og fleiri skjölum. Allt var ţetta hluti mikillar viđskiptafléttu ţar sem Sterling flugfélagiđ gekk ítrekađ kaupum og sölu, og allir virđast hafa grćtt, ja nema Glitnir.
Eftirmáli, ţulur les: Ekki náđist í Pálma Haraldsson viđ vinnslu ţessarar fréttar og Jón Ásgeir Jóhannesson vildi lítiđ tjá sig um máliđ.
Komdu svo ferđaklúbbs-hró
Munu senda saksóknara tilkynningu | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Athugasemdir
Mér finnst ţađ ógeđfellt ađ ekki megi segja fréttir af ţessum mönnum án ţess ađ ţeir kćri fréttamennina fyrir meiđyrđi, er ţađ ekki svona sem mafíósar starfa? Kćra, og kćra og kćra alla sem reyna ađ hrófla viđ veldi ţeirra?
Jóna Kolbrún Garđarsdóttir, 10.4.2010 kl. 02:21
Tek áskoruninni!
Flott breyting á síđunni ţinni
Rakel Sigurgeirsdóttir, 10.4.2010 kl. 02:55
Sćl,til lukku međ nýja "ađsetriđ". Stendur til ađ breyta hjá mér,ţegar,sonur minn má vera ađ. Já ţessir víkingar eru hankađir,en ţeir telja sig alltaf saklausa. Bíđ góđa nótt er ađ sofna.
Helga Kristjánsdóttir, 10.4.2010 kl. 03:14
Flott hjá ţér!
Ţráinn Jökull Elísson, 10.4.2010 kl. 03:18
Mun setja ţetta inn síđar. Takk fyrir ábendinguna.
Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 10.4.2010 kl. 12:19
Já ţetta er bara ekki orđiđ fyndiđ og fannst raunar furđulegt ađ hann kćrđi ekki slitastjórnina ţađan sem fréttin var komin en ég er einnig á ţeirri skođun ađ hver einstaklingur sé saklaus uns sekt er sönnuđ.
Ég hef séđ ţađ fyrir ađ allt dómskerfiđ verđi undirlagt í málaferlum nćstu 5 árin hiđ minnsta međ óheyrilegum kostnađi fyrir ţjóđarbúiđ en hvort allir faldir peningar finnast má almćttiđ eitt vita.Mér sýnist ađ Amerikan Express kortin gefin út í USA séu mest notuđ af sumum einstaklingum og skúffufyrirtćkin greiđi notkunina og ţví sé vel líklegt ađ ţetta finnist ekki viđ skođun hér á landi.
Hvar skildi Bentley bíllinn hans Björgólfs gamla vera? Falin í dótageymslu fjölskyldunnar innan um bifhjól vélsleđa Hummera og fleira undir eftirliti fjölmiđlafulltrúa ţeirra vćntanlega og fína Bens jeppann sem Björgólfur notar daglega??
Ég var reyndar búin ´fyrir áramót ađ leggja til á bloggi mínu ađ allar kirkjur landsins yrđu opnar ţegar skýrslan frćga kemur út en varđ orđlaus ađ heyra Biskupinn leggja til ađ sóknarnefndir keyptu eintak til lesningar í kirkjunum? Ţađ er ekki nóg ađ flytja pólitískar rćđur á jólum og páskum heldur ţarf ađ hafa skađvaldinn innan um fólk sem leitađi sér hjálpar??
Ţór Gunnlaugsson (IP-tala skráđ) 10.4.2010 kl. 15:36
Ekki kom ţađ fram í fćrslu minni, en ţessi texti er frá Friđriki Ţór Guđmundssyni kominn. Öllum er frjálst ađ afrita textann og nota á sínum bloggum og öđrum miđlum eins og Facebook...
Jóna Kolbrún Garđarsdóttir, 10.4.2010 kl. 23:51
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.