18.4.2010 | 03:15
Shell er búið að breytast í Orkuna
Ég hef ekki séð eina einustu frétt um það að Orkan sé að taka yfir þetta gamla og gróna fyrirtæki. Ég er að hugsa hversvegna ekki hafi verið sagðar fréttir af þessari yfirtöku?
Ætli þetta sé enn eitt dæmið um það hvernig lauma á allskonar gjörningum yfir okkur þjóðina, vegna fréttafársins út af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og eldgosanna tveggja undanfarnar vikur.
Allt í einu er AGS endurskoðunin komin í gegn og stjórnin er búin að samþykkja aðgerðapakka AGS, við ætlum að borga IceSlave í topp með vöxtum og svo ætlum við líka að gefa AGS eigur okkar í október, þegar stjórnin ætlar að byrja að selja íbúðirnar ofanaf óreiðufólkinu. Varúð, varhugaverðir tímar eru framundan.............
Athugasemdir
Hversu margir milljarðar ætli gjaldþrot Shell verði? Ætli það finnist eignir í þrotabúinu, eða eru allar eignirnar inni í Orkunni eða einhverju öðru félagi?
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 18.4.2010 kl. 03:24
Flykkja sér í grasrótarhreyfingar þar getum við andæft kröftuglega.
Helga Kristjánsdóttir, 18.4.2010 kl. 03:27
Hef ekkert séð um þetta í fréttum.
Ásdís Sigurðardóttir, 18.4.2010 kl. 13:06
Átti ekki Shell Orkuna ?
Held að þetta sé einhver svoleiðis hagræðing innan félagsins
Ragnheiður , 18.4.2010 kl. 13:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.