22.4.2010 | 02:45
Mikið erum við heppin að AGS stjórni á Íslandi í dag
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir, að kreppan í Íslandi sé bara plat. Allt tal um kreppu og óáran sé bara ýkt, logið og skrumskælt.
Eftir viljayfirlýsingu Steingríms/Jóhönnu/Gylfa/Más um uppgreiðslu IceSlave reikninganna, þá er okkur Íslendingum ekkert ómögulegt.
Útlendingar munu berjast um það að fá að lána okkur peninga, lánakjörin verða náttúrulega þau bestu í heimi, vegna þess að AGS stjórnar Íslandi.
Kreppan grynnri en óttast var | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þú ert ein af þeim sem bullar vitleysuna á blogginu, finnst þér þú leggja eitthvað markvert til umræðunnar með því. Þú segir:
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir, að kreppan í Íslandi sé bara plat.
Þvílíkt endemisbull, þetta hefur hvergi komið fram, sýndu mér og öðrum fram á það.
Sigurður Grétar Guðmundsson, 22.4.2010 kl. 08:50
Kreppan á Íslandi átti náttúrulega að standa þarna, ég bið forláts :)
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 22.4.2010 kl. 23:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.