2.10.2010 | 01:38
Takk fyrir mig
Það eru frábærar fréttir fyrir mig að barnabæturnar lækki, allir foreldrar á Íslandi þurfa að borga fyrir þessa lækkun með verri kjörum.
Börnin okkar skipta Jóhönnu og Steingrím sem þyggja milljón á mánuði ekki nokkru máli. Hvað ætli þurfi til þess að sitjandi stjórn bregðist við ástandinu í þjóðfélaginu?
Þessi lækkun á barnabótum á eftir að valda því að fleiri barnafjölskyldur flytja til útlanda, bara til þess að hafa í sig og á....
Barnabætur lækkaðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Helvítis, fokking, fokk. Hvers vegna ráðast stjórnir alltaf á þá sem minna mega sín? Er það vegna þess að allir almennilegir lögfræðingarnir hafa selt sig hæstbjóðendum?
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 2.10.2010 kl. 01:42
Þið sem kusuð VG eða Samfylkinguna kusið þetta yfir ykkur.
Sólveig Þóra Jónsdóttir, 2.10.2010 kl. 01:57
Sæl Jóna.
Svona er norræna helferðarstjórnin. Þetta sýnir hennar réttu liti...
Aldrei kjósa þessa flokka aftur. Ekki ætla ég að gera það...
Kveðjur, Sjonni
Sigurjón, 2.10.2010 kl. 05:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.