9.8.2012 | 02:52
Nýlegur landnemi, og frekar ógeðfelldur
Fyrir tveimur vikum síðan tóku dætur mínar eftir einhverju skrítnu úti í garði hjá mér.
Dóttir mín spurði mig hvort ég hefði eitrað fyrir fíflunum í garðinum, flestir fíflarnir voru með svartan hring niður við grasvörðinn.
Ég tók mynd af þessu og sendi fyrirspurn á Fésbókinni, innan stundar var svarið komið.
Svarið var Fíflalús, fannst víst hérna á Íslandi fyrir 4 eða 5 árum síðan.
Upp úr miðjum ágúst má ég eiga von á því að lýsnar fari að skríða upp húsið hjá mér, og út um allt.
Oj bara
Athugasemdir
Ætli þær lifi nokkuð nema á Fiflunum,ógeðfellt,kanski Ásthildur kunni á þessu skil. Kv.
Helga Kristjánsdóttir, 9.8.2012 kl. 10:26
Ég hef aldrei heyrt um þessi dýr, vonandi breiðast þau ekki hratt út. En það er viðbúið með hlýnandi veðri að svona vágestir verði tíðari, við höfum verið blessunarlega laus við marga slíka einfaldlega vegna stuttra sumra.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.8.2012 kl. 21:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.