24.11.2007 | 02:59
Fullt tungl!
Það er búinn að vera órói alla þessa viku, á öllum vígstöðvum
Í vinnunni og heima líka. Ég hef unnið á bar í 10 ár og vikan fyrir fullt tungl er alltaf erfið á barnum. Svo hefur heimilislífið verið í kreppu, vegna fyrrverandi maka míns. Hann er að fara að gifta sig, og vantar peninga núna. Og hvað er betra en að heimta peninga frá sinni fyrrverandi konu sem býr ennþá í íbúðinni sem er sameign. Kannski verður maður bara á götunni með börnin fljótlega, en einhver ung dama í Búlgaríu verður í góðum málum. Allt mér að þakka! Kemur í ljós fljótlega
Hún er yngri en tvö elstu börnin okkar, nýja konan!!!! ein í sjokki
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.