28.11.2007 | 02:17
Bíllinn minn kominn á götuna aftur eftir viku bilun!!
Bíllinn minn fékk gangtruflanir í fyrsta skipti síðan ég keypti hann fyrir 6 árum og 4 mánuðum. Hann var tvo daga í stæði þar sem ég lagði honum og svo kom bifvélavirkinn minn og sótti hann fyrir mig. Á verkstæðinu gekk illa að fá hann til að ganga, en þar sem ég hef góðan bifvélavirkja fann hann hvað var að Grána mínum, eitthvað var olían að fara á villigötur og lenti á kertunum og eitthvað skeði með háspennukeflið, þannig að Gráni minn var alveg að gefast upp, núna hefur hann nýtt ventlalok og eitthvað var borað út, og annað sett í staðinn einhversstaðar í honum!!!!
Og núna er Gráni minn með kraft á við aðra Síríona hann drífur upp brekkur og allt virðist vera í lagi með hann! Og viðgerðin kostaði mig ekki aleiguna
Ein frekar ánægð, með bifvélavirkjann sinn
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.