27.12.2007 | 04:02
A og B manneskjur
Ég er dæmigerð B manneskja sem nýt þess að fara rosalega seint að sofa og vakna eins seint og mögulegt er, hjá mér byrjar dagurinn sjaldan fyrir hádegi. Ég vakna að vísu kl. 7.30 bara til að vekja börnin mín í skólann, svo fer ég upp í sófa og sef til hádegis. Það er gott fyrir mig að vinna bara á kvöldin. Núna er draumatími, jólafrí í skólanum og engin vekjaraklukka að trufla mann á morgnana. Ein glaðvakandi
Athugasemdir
Er svona B sjálf, en svo undarlega bregður við að nú um þessi jól hef ég verið sofnuð um miðnætt. Hvað getur verið í gangi?
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.12.2007 kl. 08:00
Mér finnst einmitt notalegt að skrölta svona langt fram á nótt, vinn mest á kvöldin. Alla virka daga vakna ég samt 7:30 til að vekja aðra B manneskju!! Annars á ég núna 3ja daga frí og það verða hvíldardagar par excelans. Kveðja frá B manneskju.
Hólmdís Hjartardóttir, 27.12.2007 kl. 11:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.