28.12.2007 | 01:38
Núna er tveggja kápu veður, svakalega kalt
Það er ekki tekið út með sældinni að reykja úti þegar það er svona kalt úti, mínus 10 gráður, sagt og skrifað. Á morgun ætla ég að finna ullarnærfötin, fyrir göngutúrinn með hundinn minn. Annars gæti mig kalið á fótleggjunum, síðast þegar ég fór í göngutúr í frosti var ég með verki í hnjánum í marga klukkutíma.
Ég lenti í því í fyrra þegar mesta frostið var í janúar eða febrúar að það var bilun í hitakerfinu mínu, öll fjölskyldan mín keypti ullarnærföt og svo vorum við öll með flísteppi og barnabarnin með húfu inni. Um leið og frostið fór, kom píparinn og bjargaði málinu á 20 mínútum. Vatnsdælan sem er staðsett úti í bílskúr var ónýt, ný var keypt og við fengum hita aftur. Ein með hroll
Athugasemdir
Þurfti niður á Laugaveg í Landsbankann í dag. Ég reyndi að fá vinnu á staðnum gat bara ekki hugsað mér að fara út aftur. Kuldinn hefur slæm áhrif á vöðvabólgu og gigt. Eftir ökklabrot á ég það til að haltra í svona kulda. Svo setur maður axlirnar upp fyrir eyru og er svo að drepast í vöðvabólgu fyrir vikið. Ekki trúi ég að margt reykingafólk nenni að fara út að skemmta sér í þessu. Ég reyki inni hjá mér.
Hólmdís Hjartardóttir, 28.12.2007 kl. 01:56
Ég hætti að reykja inni hjá mér fyrir 4 árum, og barinn minn er rétt hjá landsbankanum Laugavegi 77 eða ská á móti honum
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.12.2007 kl. 02:08
Ég er ákveðin í að birtast einhvern tímann á barnum þínum.Það er helv. sóðaskapur að reykja inni en í 10 stiga gaddi...
En mikið er gott að þurfa ekki að fara út úr húsi á morgun
Hólmdís Hjartardóttir, 28.12.2007 kl. 02:27
Við seljum líka kaffi, kökur og te líka, það þurfa ekki allir að drekka hjá okkur :) mundu bara að segja hver þú ert þegar þú kemur. Þar sem ég hef ekki séð mynd af þér...hei og veistu hvað það hringdi í mig kúnni í kvöld og var að segja að hann hann hefði lesið bloggið mitt!!! og hvað myndin af mér væri fín!!! hehe
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.12.2007 kl. 03:05
Ég þóttist vera búin að svara þér, hef líklega gleymt að senda. Þegar ég mæti á barinn byrja ég á að panta mér stóran bjór. Skoða staðinn, fylgist með þér því ég mun þekkja þig. En ég lofa að gefa mig fram.
Hólmdís Hjartardóttir, 28.12.2007 kl. 03:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.