29.12.2007 | 01:25
Kvöldgangan breyttist í martröð
Ég fór í mína venjubundnu kvöldgöngu með hundinn minn hann Úlf, þegar við vorum hálfnuð í göngutúrnum okkar, datt einhverjum í hug að sprengja eina litla köku, svona áramóta bombu með ljósum, hvellum og ýlum. Það var eins og minn litli Úlfur hefði fengið eina rakettu upp í rassinn, hann tók á rás og ýlfrið í honum var eins og að einhver væri að pína hann eða drepa. Hann var svo sterkur að hann dró mig nokkra metra í hálkunni, og í bónus fékk hann niðurgang. Dæturnar spurðu þegar ég kom heim, hvaða lykt er þetta var einhver að reka við? En nei hundurinn var allur útbíaður í skít. Ég hlakka ekki til áramótanna. Ég þarf að tala við dýralækninn minn og fá róandi fyrir Úlfinn minn með músarhjartað. Ein áhyggjufull

Athugasemdir
Hundur teymir konu um nesið. Frekar leiðinleg lífsreynsla en þið eruð vonandi bæði heil. Aumingja dýrin um áramótin
Hólmdís Hjartardóttir, 29.12.2007 kl. 02:48
Kisurnar okkar eru frekar rólegar um áramót en þetta eru fyrstu áramót Úlfs og Tjásu , Úlfur er 8 mánaða gamall og Tjása 6 mánaða gömul kisa
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 29.12.2007 kl. 02:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.