29.12.2007 | 03:09
Ýsa var það heillin!
Ég eldaði 7 ýsuflök í dag fyrir mig og krakkana, við átum bara helminginn af þeim. Það var með vilja gert að elda svo mikið, við étum plokkfisk og þrumara á morgun. Sem betur fer borða allar stelpurnar mínar plokkfisk með bestu list, en sonurinn borðar ekki fisk, eða annan venjulegan mat= hann er hræðilegur gikkur. Það sem hann borðar er nautasteik með bernaise sósu, pizza, hamborgarar, pylsur og súrsætar rækjur frá kínverskum veitingarstað í Kringlunni. Svo getur hann borðað ristað brauð með steiktri skinku og spæleggi, og stundum beikon.
Ein sem eldar mat bara venjulegan mat

Athugasemdir
Á tímabili vildi yngri dóttirin bara humar, stórsteikur, pizzur og ;bleikan fisk. Nú er hún búin að uppgötva plokkfisk og steiktan fisk. Þetta kemur
Hólmdís Hjartardóttir, 29.12.2007 kl. 03:39
Ég veit, öll hin börnin hafa haft einhverja dynti með mat, en sonurinn er frekar slæmur með almennilegan mat, hann borðar hann helst ekki
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 29.12.2007 kl. 03:57
Var að taka ýsuflök úr frosti þó sunnudagur sé á morgun!!!
Hólmdís Hjartardóttir, 30.12.2007 kl. 01:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.