30.12.2007 | 02:19
Ég hlakka ekki til áramótanna
Hundurinn minn virðist haldinn ofsahræðslu, það er sama hvort það springi raketta eða kaka, langt frá okkur hann byrjar að skjálfa og ýlfra, í dag þorði hann varla út að pissa. Hann hefur ekkert étið síðan í gær, er bara í einu allsherjar stresskasti. Kisurnar eru búnar að vera óvenju heimakærar í dag, þær hafa varla farið út að pissa heldur.
Við sem erum sprengjuóð, við keyptum flugelda fyrir 33.000 í kvöld, ætli ég verði ekki að vera inni á gamlárskvöld að passa dýrin okkar. Ég vona að það verði opið hjá Dagfinni dýralækni á mánudagsmorguninn svo ég fái eitthvað róandi fyrir Úlfinn minn. Við lokum kisurnar inni í herbergi með háværri tónlist eins og í fyrra, en þetta eru fyrstu áramótin hans Úlfs, hann er bara átta mánaða gamall. Ein áhyggjufull
Athugasemdir
Ertu galin???Ég hef stundum látið dýraeigendur fá róandi lyf fyrir gamlárskvöld en þau virka ekki á dyr lyfin sem ætluð eru mönnum. Þú verður að hitta Dagfinn.....33þús einstæð móðir... Ég lofaði að taka kvöldvakt gamlárskvöld eftir að dóttir mín lofaði að fara til föður síns. Núna ætlar hún að vera ein heima, gera sér pizzu og brenna stjörnuljós. Hvorki ég né pabbinn erum sátt.
Hólmdís Hjartardóttir, 30.12.2007 kl. 02:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.