Biluð blöndunartæki á baðinu...brrr brrr

Tvær af dætrum mínum fóru í bað í kvöld, í mjög snöggt bað.  Blöndunartækin blanda aðallega köldu vatni í baðkarið.  Ég þarf að taka þau af á morgun og athuga hvort ég sjái eitthvað að, það er ómögulegt að geta ekki baðað sig almennilega og slappað af í heitu vatni.  Tækin eru ekki nema tveggja ára gömul, ég þarf alltaf annað slagið að taka þau af til að hreinsa sigtin, ég vona bara að ég finni stóru rörtöngina úti í bílskúr á morgun.  Bílskúrinn minn er svo troðinn af drasli að það er erfitt að ganga um þar inniWoundering  Það er næsta árs verkefni að taka til þar, ég hef ekki komið bílnum inn í hann í 10 ár.  Ein löt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Gott að þú ert ekki verkefnalaus á morgun

Hólmdís Hjartardóttir, 31.12.2007 kl. 02:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband