Nýárs skrall

Það var skrall í gangi í vinnunni í kvöld, rifrildi, pústrar og skilningsleysi (tungumálaörðuleikar) Mikið er ég fegin að hafa komist í gegn um kvöldið stórslysalaust Woundering  Það var áberandi pirringur í öllum, og mikil drykkja, ég þurfti oft að ganga á milli manna, og stundum kvenna.  Það er skrítið þegar allir vilja láta hnefana tala, eða vera með kraftadellu.  Það er ekki einu sinni fullt tungl.  Í fyrsta skipti í mörg ár varð ég að hringja á hjálp, ég réð ekki við ástandið ein.  Ég vona bara að ég lendi ekki í mörgum svona kvöldum á þessu ári.  Ein útkeyrð


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sæl bloggvinkona.Ekki ertu ein að vinna á barnum??? Engir dyraverðir? Ég verð æ forvitnari um þennan stað. Er ekki vinnudagur á morgun? Ekki hjá mér reyndar. Mér sýnist þetta stórhættulegt starf. Þetta hlýtur að vera ör-spilabar. Sem ég mæti á í janúar.Ég get í það minnsta lofað að vera ekki upphafsmaður að slagsmálum. Finnur þú mun á fullu tungli?

Hólmdís Hjartardóttir, 2.1.2008 kl. 03:10

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég er alltaf ein, ég er bæði á barnum og útkastari:)

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 2.1.2008 kl. 03:15

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

og já ég finn mun vikuna fyrir fullt tungl :)

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 2.1.2008 kl. 03:16

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Mon dieu

Hólmdís Hjartardóttir, 2.1.2008 kl. 03:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband