3.1.2008 | 02:30
ég er Fórnarlamb....með stóru EFFI
Ég er fórnarlamb, það hafa allir sem eru grennri en ég skotleyfi á mig. Á hverjum degi þarf ég að hlusta á vitringa segja mér að ég sé of feit. Algengir frasar sem ég þarf að hlusta á " afhverju grenniru þig ekki, það þarf bara að éta minna og hreyfa sig meira" og "hvenær áttu að eiga?" Halló ég hreyfi mig alveg nóg, mér finnst bara svo gott að borða, sérstaklega fitandi og bragðgóðan mat. Get ég að því gert að ég er eins vaxin og amma mín??? Ég bara spyr. Ein sem nennir ekki einu sinni að hugsa um megrun, þá verð ég bara svöng
Mér finnst gott að Evans verslunin er komin til Íslands!

Athugasemdir
Númer 1,2 og 3 er að vera sáttur við sjálfan sig. Ég er líka of þung, hreyfi mig mikið, borða ógrynni af grænmeti. Sæki alls ekki í sætindi. En mér þykir bjór góður og feitir ostar. Fólk meinar kannske vel. En það er miklu léttara að vera grannur. Það er horaðasta fólkið sem er í sífelldum megrunum. Skyndimegrunarkúrar eru mjög óhollir. Því miður fylgja margir sjúkdómar ofþyngd. En fólk sem er dónalegt er það að því að það er eitthvað að hjá því sjálfu.
Hólmdís Hjartardóttir, 3.1.2008 kl. 02:40
Ég gæti ekki verið meira sammála, ég elska grænmeti og borða yfirleitt ekki kökur eða sælgæti, ég hef varla orðið veik síðustu 30 ár, mér þykir líka bjór góður og ostar líka, og matur ég elska mat!!
og ég er algerlega sátt við sjálfa mig, og hef verið í mörg ár 
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 3.1.2008 kl. 02:48
Mér varð að orði í Fjarðarkaupum þar sem ég keypti lambahrygg handa frænda mínum. Hvernig í ósköpum geta lömb orðið svona feit uppi á fjöllum þar sem þau lifa eingöngu á gróðri. Ég vil ekki feitt kjöt.
Hólmdís Hjartardóttir, 3.1.2008 kl. 03:06
það er gott að vera sáttur við sjálfan sig.... En verð að segja eitt að þegar ég var búinn að eiga nr 3 þá drakk hann svo mikið frá mér að ég gjörsamlega horaðist niður og vá sögurnar sem ég fékk á mig þá,, ég var kominn með anorexíu og læti og það var alltaf verið að segja mér að borða meira, en vitið hvað ég borðaði á við 4 en ekkert kom utan á mig þetta voru erfiðir tímar..'Eg var alltaf að reina að fita mig..En svo þegar ég átti yngsta þá kom forðinn utan á mig hehe og hann vildi ekki brjóst svo að ég fór í átak og ekki átak hehe....... En er allveg sátt við mig núna...það er hjartað í fólkinu sem rúlar ekki fitan eða beinin
Alexandra Guðný Guðnadóttir, 4.1.2008 kl. 01:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.