það er varla að maður þori að byrja að blogga, ég dett út með nokkurra mínútna millibili

Nú verð ég að vera snögg að vélrita, og vona að þessi færsla skráist.  Ég verð að segja frá einu skemmtilegri athugasemd sem ég fékk í vinnunni í kvöld.  Yfirleytt er ég klædd eins og drusla, eða bara í bol og buxum í vinnunni.  Aldrei þessu vant var ég í nýrri fínni mussu, sem ég fékk í jólagjöf, sá eini sem sagði eitthvað við mig um nýja klæðaburðinn sagði.  Þetta mynstur minnir mig svo á gardínu, ég fékk hláturskast.  Hvað er í gangi er mamma mín svona ósmekkleg að kaupa mussu með einhverju gömlu gardínumynstri handa mér í jólagjöf, sjálf er ég ánægð með mussuna Woundering  Ein mussuklædd

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þú gætir fengið þér gardínur í stíl  Ég átti kunningja í gamla daga sem átti ;Axminster; buxur. Þær minntu svo mikið á gólfteppin frægu. Svo hef ég þekkt listrænar systur sem saumuðu á sig úr gömlum gardínum. Keep on living..

Hólmdís Hjartardóttir, 4.1.2008 kl. 02:19

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég sá nú Sound of music um daginn og þar saumaði nunnan klæðnaði á öll börnin 7 úr gardínum Mér finnst mussan frekar smart, það er bara ósmekklegur kúnni sem hefur ekki vit á nýjustu tísku sem sagði þetta

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 4.1.2008 kl. 02:24

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sound of Music klikkar ekki.Til hamingju með nýju mussuna. Eg hef tekið eftir að það hafa nú ekki allir karlar vit á tískunni......

Hólmdís Hjartardóttir, 4.1.2008 kl. 02:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband