Ekki léttist ég um þessi jól

 Ég var nú frekar fegin, þegar ég steig á viktina í gærkvöldi og sá að ég hafði bara þyngst um 600gr. þessi jól og áramót.  Svo það er ekki svo mikið auka sem ég þarf að ganga af mér á þessu ári. Woundering

 Þegar ég fór í vinnuna í kvöld var íbúðin mín fullskreytt, börnin mín voru í dugnaðarstuði í kvöld og allt jóladótið í kassa og tréð úti á götu þegar ég kom heim.  Mikið er ég fegin að þurfa ekki að gera þetta í ár, ég slapp líka við það í fyrra.

  Á morgun ætla ég að fara í göngutúr með hundinn minn hann Úlf, hann hefur varla viljað fara út síðan fyrir áramót, sem betur fer var hann rólegur inni yfir áramótin, hann hætti bara að éta í tvo daga meðan það versta gekk yfir og vildi ekki fara út.  Í dag var hann skárri, þá byrjuðu lætin aftur.  Það er samt eins og hann sé ekki jafn hræddur núna og hann var um áramótin. Þessar sprengingar hafa ekki truflað kettina á heimilinu mikið, þau virðast ekki vers neitt hrædd við þær.

 Loksins er venjuleg vinnuvika byrjuð, engin auka frí og allt fer í eðlilegar skorður.  Ein reglusöm


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ekki þyndist ég um þessi jól, get kannske verið þakklát fyrir þessa magapest

Hólmdís Hjartardóttir, 7.1.2008 kl. 01:47

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Átti að vera þyngdist

Hólmdís Hjartardóttir, 7.1.2008 kl. 02:01

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

 vikt, vigt ég man aldrei hvernig á að skrifa vigt...ég skrifa alltaf vikt !!!!

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 7.1.2008 kl. 02:06

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

vigt

Hólmdís Hjartardóttir, 7.1.2008 kl. 02:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband