Alveg var þetta fyrirsjáanlegt, með seðilgjaldið og fit. kostnaðinn

Mikið var ég fegin, þegar einhver maður fór að rengja bankann sinn, og neitaði að borga fit. kostnað. Ég legg það ekki í vana minn að fara yfir á kortinu, en mér finnst það samt blóðugt að borga kannski á áttunda hundrað krónur er ég fer óvart nokkrar krónur yfir á kortinu.  Undanfarin 5 ár hefur það gerst kannski 2-3 að ég hef eytt um efni fram, en samt ekki ég átti peninga á öðrum reikningi og gleymdi að millifæra peninga.  Svo þetta með það að borga 250 kr. í hvert skipti sem maður fær sendann reikning, það er alveg út í hött líka Woundering   En hvar bera bankarnir næst niður þegar þetta er ekki lengur  tekjulind þeirra.  Ein sem bíður spennt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

oooh þeir finna smugu...

Hólmdís Hjartardóttir, 8.1.2008 kl. 02:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband