Undin tuska

Ég kom heim úr vinnunni eins og undin tuska, algerlega búin að fá nóg, og allt einum viðskiptavini að þakka.  Viðskiptavinurinn er með athyglissýki á háu stigi, ég varð að sitja á eintali við hann í allt kvöld (varð samt að afgreiða hina viðskiptavinina á hlaupum)  þá var kallað á mig til að segja mér eitthvað merkilegt sem ég mátti ekki missa af!!, þegar ég fór út að reykja, fór hann líka út að reykja og talaði viðstöðulaust.  Svo þegar ég reyndi að fara í uppvaskið kallaði hann á mig eða kom að gá að mér til að geta sagt mér eina söguna enn.  Hann hefur hitt Jesú og Maríu mey, og er helgur maður að eigin sögn.  Svona er nú lífið á Laugaveginum í janúar 2008.  Sem betur fer er svona frekar sjalgæft, eða mjög sjaldgæft.  Flesta daga kem ég heim í góðu skapi og ekki með höfuðverk. Ein sem er góður hlustandiWoundering

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þú átt samúð mína alla

Hólmdís Hjartardóttir, 9.1.2008 kl. 02:33

2 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Hæ "Huxa". Takk fyrir að þiggja bloggvináttu. Var bara að byrja og ákvað að velja mér þá sem mér fannst skemmtilegir - og þú varst ein af þeim

Kannast við svona "þreytandi" fólk úr mínum bransa.... get örugglega lesið um það hérna hjá þér, en til að stytta mér leið..... hvar ertu að vinna?

Kv. LiljA

Lilja G. Bolladóttir, 9.1.2008 kl. 02:36

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

á Baronspöbbinum á Laugavegi 72 :)

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.1.2008 kl. 02:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband