10.1.2008 | 03:15
Uppfærsla í gangi
Ég hef tölvuna mína stillta á sjálfvirka uppfærslu, vegna þess að ég gleymi alltaf að uppfæra sjálf. Ég held að það sé vírus eða ormur í henni, vinnslumynnið er alltaf á fullu og erfitt að framkvæma skipanir.
Ég verð að muna að skrifa jólamyndirnar á disk næstu daga áður en tölvan hrynur alveg. Þetta er í annað skipti sem ég skrifa í kvöld, fyrri færslan hvarf út í veður og vind. Vegna skorts á vefköku!! arg.. arg!! Ein pirruð
Athugasemdir
vírusvörnin í minni er útrunnin....
Hólmdís Hjartardóttir, 10.1.2008 kl. 03:19
Prófaðu að fara í "tools" á browswernum þínum, sem ætti að vera hægra megin´efst ef þú ert með nýlegan explorer.
farðu þar inn og smelltu á internet obtions og þá færðu upp glugga, á einum hnappinum stendur delete. Smelltu á hann og þá færðu annan glugga, sem býður upp á ýmsar útþurrkanir. Smelltu á delete cookies og delete files og delete history. Þetta eru óþarfa gögn, sem bara þyngja tölvuna þína. Gerðu þetta með reglulegu millibili.
Farðu svo inn á www.spybot.com og downlódaðu þessu fría forriti, sem á auðveldan hátt losar þig við helstu spyware og adware, sem líka eru að ormast um í tölvunni. Þetta er afar auðvelt í notkun. Smelltu bara á "Scan" og þá finnur forritið ruslið. smelltu loks á "fix problems." og þá ertu laus við helling.
Besta almenna vírusvarnarforritið er AVG og ráðlegg ég þér að kaupa það á netinu. Annars geturðiu fengið fría versjón, sem ver þig fyrir nær öllum vírusum.
Ekki smella á neina glugga, sem opnast án þess að þú hafir beðið um það. Sérstaklega ekki glugga, sem segja þér að þú sért með vírus og hvetja þig til að kaupa vírusvarnarforrit.
Ágætt er að hafa popup vörnina á browsernum alltaf á og leyfa ekki popup, nema að þú viljir leyfa það sérstaklega.
Jón Steinar Ragnarsson, 10.1.2008 kl. 03:41
Ég fer reglulega og eyði öllum kökum, sögu og skammtímaskjölum...allavega þrisvar í viku. Ég ætla að skoða þetta spybot dæmi. Takk fyrir hjálpina
Ég er alltaf með pop-up vörnina á :)
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 11.1.2008 kl. 01:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.