11.1.2008 | 02:18
Verkefni frídaganna framundan
Fara út í bílskúr og telja einnota dósir, gler og plastflöskur. Til þess að geta gengið um bílskúrinn, þar sem ég þvæ þvottinn minn og svo þarf ég að finna ákveða hluti sem eru týndir þar. Ég þarf að telja margra mánaða birgðir af tómum ílátum undan drykkjarvöru. Þegar flöskurnar eru taldar get ég farið út með jólaskrautið, og þvegið nokkrar þvottavélar. Óhreina tauið mitt er eins og fjall inni á klósetti. Ætlunin er að reyna að þvo allan þvottinn, ég veit ekki hvort ég nenni því. Þá geri ég það bara þar næstu helgi
Ein sem nennir því varla en ætlar samt að gera það

Athugasemdir
Skammdegið hefur líka haft svona áhrif á mig. Hér þarf stórátak. Búin að telja flöskur!!! Sá barinn þinn í dag og gerðist gluggagægjir!! Hann sem átti að vera farinn. Of mikil vinna framundan, þegar ég vil bara vera pökkuð inn í baðmull
Hreina tauið mitt er fjall. Ég hef aldrei verið svona löt en nú birtir á daginn og bráðum kemur vorið.....
Hólmdís Hjartardóttir, 11.1.2008 kl. 02:44
Já að telja dósir er nú ekki uppáhald margra og allrasíst hjá mér en maður gerir þetta samt..Er nú rosa duglega að þvo þvott ég er með einhverja árátu að það má bara alls ekki vera neitt í óhreina körfuni,það liggur við að ef að það er 1 dökk flík í körfuni þá verð ég eins og eldibrandur að leita að fleyri flíkum og ríf liggur við eitthvað út úr skáppnum til að geta tæmt hana arg..Þetta er ógeðsleg áráta urrr en gangi þér vel kv Allý
Alexandra Guðný Guðnadóttir, 11.1.2008 kl. 23:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.