Allsherjar tiltekt, ekkert minna dugði

Ég og frumburðurinn tókum til í allan dag, bæði í bílskúrnum og líka hérna inni hjá okkur.  Það var meira að segja tekið til í fataskápunum.  Núna er allt jóladótið komið á sinn stað úti í bílskúr og stór hluti af einnota umbúðunum er kominn í Sorpu og ég á 18.000 krónur auka í dag!!  Við vorum svo duglegar í dag að við töldum 1.800 flöskur, og dósir.  Sem betur fer höfum við ekki drukkið sjálf úr öllum þessum umbúðum, ég tek dósir og plast á barnum þar sem ég vinn.  Það er smá auka peningur fyrir einstæða móður að spila úr.  Ein hagsýn Woundering

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Á morgun segir sá lati. Á mínu heimili þarf átak. Búin að telja í 4 ruslapoka. Enn á eg eftir að klára jólin. En ég býð gömlum skólasystrum í mat næstu helgi og þá verður allt glansfínt. Þarf stundum að sparka í rassinn á sjálfri mér

Hólmdís Hjartardóttir, 13.1.2008 kl. 02:43

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

notaðu þetta auka fyrir þig

Hólmdís Hjartardóttir, 13.1.2008 kl. 03:57

3 Smámynd: Alexandra Guðný Guðnadóttir

Duglegt fólk hér á bæ glæsó sammála Hólmdísi notaðu auka fyrir þig þú átt það skilið

Alexandra Guðný Guðnadóttir, 13.1.2008 kl. 13:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband