15.1.2008 | 02:11
Kæra Jóhanna, félagsmálaráðskona
Ég var húsmóðir í yfir 20 ár og mig vantar sárlega lífeyrissjóð, þegar ég kemst á aldur eftir u.þ.b. 20 ár verð ég öreigi. Þegar ég var 45 ára eftir skilnað þurfti ég að byrja eins og unglingur, sem er að koma út á vinnumarkaðinn í fyrsta sinn. Ég hef enga menntun, og hef litla möguleika á því mennta mig úr þessu. Ég hef ekki efni á því að fara í skóla, samt á ég gott með það að læra og er ágæt í íslensku, og öðrum tungumálum. Ég get bjargað mér á 5-6 tungumálum, sem kemur sér vel í vinnunni minni. Ein ráðvillt og einstæð móðir

Athugasemdir
Allir fá eitthvert lágmark, kannske verður Jóhanna búin að laga til í þessu kerfi.
Hólmdís Hjartardóttir, 15.1.2008 kl. 02:17
'Eg veit um konu sem fékk aðstoð hjá féló í sambandi við skólan..Það var borgað bækur og nám og hún fór á endurhæfingarlíferi á meðan..sem tengist nátturulega ekki þínum líferi... En ég myndi tékka á þessu.. held að þetta eigi líka við þegar að maður fer í fjarnám (hlítur að vera) en gangi þér vel kv Allý
Alexandra Guðný Guðnadóttir, 15.1.2008 kl. 13:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.