16.1.2008 | 01:56
Þurrð á fíkniefnum, hefur fíknó staðið sig svona vel?
Ég heyrði á barnum í kvöld að það væri þurrð á hassi í bænum, ég vona bara að það verði þurrð á hinum innfluttu fíkniefnunum, Amfetamíni, kókaíni og e-pillum. Þá myndi nú bæjarbragurinn breytast, ég hef svo miklar áhyggjur af þessum málum, ég hef lent í ýmsum uppákomum í vinnunni tengdum fíkniefnum og svo geðveikinni. Fársjúkir geðsjúklingar eru á ferli og virðast fá að trufla fólk á förnum vegi óhindrað. Svo eru læknadóps fíklarnir, þar verður sjaldnast þurrð. Þeir virðast alltaf fá það sem þeir vilja hjá lækninum sínum. Svo er drukkið ofan í lyfin og sturlunarástand verður. Ein áhyggjufull

Athugasemdir
Ég vona að skorturinn verði verulegur á öllu nema sí
garettum og bjór
Hólmdís Hjartardóttir, 16.1.2008 kl. 02:10
heh ég líka
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 16.1.2008 kl. 02:11
já þetta er svakalegt vona að það verður skortur á þessu jakki.. En vesta er með lækna dópið. Það hlítur að vera til eitthvað sístem svo að læknar sjái hvenar fólk fékk seinast pillur eða eitthvað... En ég vona líka að fólk sjái ljósið og fari í meðferð.... knús og koss Allý
Alexandra Guðný Guðnadóttir, 16.1.2008 kl. 03:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.