Úti er alltaf að snjóa...

Ekki gráta elskan mín, þó þig vanti vítamín, þú færð í magann þinn mjóa, melónur og vínber fín.  Svona var ég fegin þegar fór að snjóa í dag, og raulaði þetta með mér.  Ég vona að það snjói meira á morgun, og hinn daginn líka FootinMouth   Mér finnst loksins kominn vetur, og loksins er allt svo fallegt og bjart.  Hundurinn minn elskar snjóinn líka, hann hoppar og skoppar úti í garði og er eins og lamb í haga á fallegum degi.  Ein ánægð með snjóinn

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Veistu þetta raula ég oft. Mér fannst æðislegt að ganga í snjónum í dag. Loftið er svo hreint og ég finn góða lykt af snjó. Miklu bjartara og andinn fer á flug.......

Hólmdís Hjartardóttir, 17.1.2008 kl. 02:26

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég sagði í fyrradag, að ég óskaði þess að það kæmi alvöru blindbylur í svona 3 daga og allt yrði ófært og þá yrði nú gaman að lifa, ég sakna þess þegað maður óð snjóinn í mitti til að komast í skólann í gamla daga

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 17.1.2008 kl. 02:33

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ég kann ekki að setja upp vísu hérna, búin að prófa ótal leiðir, en einuppáhaldsvísan mín er svona; Ég rækta mitt skegg í tæka tíð/því tennurnar vantar að framan/ það er ekki gott í kulda og hríð/ að kjafturinn nær ekki saman. Get ég sett þetta í bogg með skástrikum. Þetta er eftir KN. Ég á nostalgiskar minningar um stórhríð og rafmagnsleysi.

Hólmdís Hjartardóttir, 17.1.2008 kl. 02:43

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

 að sjálfsögðu getur þú það

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 17.1.2008 kl. 03:12

5 Smámynd: Alexandra Guðný Guðnadóttir

'Ufff það er svo yndislegt að hafa snjó,hann er svo róandi.'Eg fer öll í gírinn þegar að það snjóar.Vonandi snjóar meira svo að það sé hægt að búa til snjóhús knús og kossar Allý

Alexandra Guðný Guðnadóttir, 17.1.2008 kl. 03:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband