Mér fannst leikurinn við Svíana góður

Er eitthvað að mér? Mér fannst strákarnir okkar standa sig vel, svíarnir voru bara stærri, og sterkir í vörninni, markmaðurinn þeirra var ótrúlegur.  Ég hef ekki skoðað tölur úr leiknum, hvað sá sænski varði mörg flott skot.  Þó að strákarnir spiluðu frekar rólega og frekar utarlega, áttu þeir góð skot að sænska markinu en markmaðurinn lokaði markinu.  Þessi sænski markmaður er einn sá besti í heiminum í dag, og er ég ekki hissa eftir frammistöðuna í kvöld.  Ein spennt fyrir handboltanum Woundering

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ég hlustaði bara , sá lítið en þetta voru ekkert óvænt úrslit. Það vantar risa í liðið. Ég hef mjög gaman að horfa á handbolta.

Hólmdís Hjartardóttir, 18.1.2008 kl. 01:15

2 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Get ekki tjáð mig, var að horfa en var alltaf að hlaupa í burtu til að sinna einhverju öðru á mínum annasama vinnustað.

Held að strákarnir séu alltaf að gera sitt besta.... en það besta er bara greinilega ekki nógu gott, þó við öll viljum trúa því. Þjóðarsálin þarf að trúa því

Lilja G. Bolladóttir, 18.1.2008 kl. 04:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband