20.1.2008 | 01:36
Stjörnuspá dagsins!
Eltu skuggann þinn og hann sleppur í burtu. Snúðu baki í hann og hann eltir þig. Notaðu þessa reglu til að laða að einhvern sem erfitt er að ná í. Það er nú eins gott að ég er ekki að elta neinn, mér finnst gott að vera ein með börnunum mínum. Ég hef aldrei elt neinn og mun aldrei gera það. Í vinnunni hef ég fengið nokkur bónorð, en ég hef hafnað þeim öllum
Svo hef ég fengið tilboð í dans, "súludans" fyrir Færeyskan kúnna, hann átti sand af seðlum. Aumingja maðurinn hlýtur að hafa verið eitthvað bilaður, það er engin súla á barnum þar sem ég vinn. Ein sem hafnar öllum bónorðum.

Athugasemdir
Já svona lítur stjörnuspáin okkar út
en aldrei hef ég fengið tilboð í súludans
Hólmdís Hjartardóttir, 20.1.2008 kl. 01:42
Ég á afmæli tveimur dögum á eftir þér, ef ég miða við kommentið á myndina á ii2.org
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.1.2008 kl. 01:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.