Kringlu leiðangur

Yngsta dóttir mín var svo rík að við þurftum að fara í Kringluna til þess að eyða uppsöfnuðum vasapeningum, hún átti heilar 4.500 krónur.  Hún keypti sér sleða, og Barbi ísskáp, með allskonar mat í og My little pony hest og loðna fingravettlinga.  Hún á afgang eftir öll innkaupin, u.þ.b. 600 krónur.  Ég eyddi miklu meira en hún, samt vantaði mig ekkert, en ég rakst á diska úr matarstellinu mínu, sem er sígilt og var eina varan sem var ekki með afslætti í búsáhaldaversluninni í Kringlunni.  Ég keypti mér 4 diska á 960 krónur stykkið.  Svo fór ég með gleraugun mín sem einhver steig á í gær, í Augað í Kringlunni.  Sem betur fór gátu þeir lagað gleraugun, og ég þurfti ekkert að borga fyrir viðgerðina, svo ég keypti einnota gleraugnaþurrkur, til að borga eitthvað.  Hún er með eindæmum þjónustan í Auganu, ég hef aldrei þurft að borga fyrir lagfæringar á mínum gleraugumWoundering  Ein þakklát

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Litla fólkinu finst svooo gaman að versla, en ég fer helst bara í matvöruverslun

Hólmdís Hjartardóttir, 20.1.2008 kl. 11:39

2 Smámynd: Alexandra Guðný Guðnadóttir

Maður er alltaf þakklátur fyrir góða þjónustu og að þurfa að borga ekkert þegar maður á lítið af peningum Og mikil ósköp verslar maður stundum mikið þegar að maður þarf þess ekki knús og koss kv Allý

Alexandra Guðný Guðnadóttir, 20.1.2008 kl. 16:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband