Fljótlegur og góður matur.

Ég fann upp þennan rétt fyrir nokkrum árum, hann er auðveldur og fljótlegur og kostar ekki mikið uppvask, eða vinnu Woundering   Ég byrja á því að steikja gott nautahakk með lauk, sveppum (má sleppa) og papriku (má sleppa), krydda með Season-All  og svörtum pipar, svo er hent út í þetta einu glasi af jasmin hrísgrjónum og þau steikt smá og skvett útí soya sósu nokkrum skvettum og einum súputeningi, svo eru tvö glös af vatni sett útí.  Þetta er soðið í 20 mín.  Svo eru spæld egg sett ofan á réttinn á diskinum, þetta er frábær og fljótlegur réttur fyrir önnum kafnar húsmæður.  Ein hagsýn húsmóðir

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hljómar þægilega,hér má eiginlega ekkert setja út í hakk

Hólmdís Hjartardóttir, 24.1.2008 kl. 11:29

2 Smámynd: Alexandra Guðný Guðnadóttir

Hljómar jammí mmm..elska svona rétti.... koss og knús Allý

Alexandra Guðný Guðnadóttir, 24.1.2008 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband