3.2.2008 | 02:28
íslensk geðveila
Mikið skemmti ég mér vel í kvöld, þegar ég horfði á spaugstofuna. Það er nú ekki oft sem ég hlæ að spaugstofunni. Eftir allar fréttir af Ólafi Eff og hvernig hann upplifði síðustu spaugstofu, fannst mér þeir spaugstofumenn hitta naglann á höfuðið í kvöld.
Ég er að ammast í kvöld, elsta barnabarnið mitt er hjá mér. Sem betur fer leikur hann mikið við yngstu dóttur mína, svo ég þarf ekki að hafa of mikið fyrir þessu. Ég vona að krakkarnir sofi út í fyrramálið svo ég fái minn fegurðarblund, ekki veitir af
Ég fór að versla í nýju Bónus versluninni á Grandanum í dag, það kostaði klukkutíma biðröð við kassann. Mikið á ég eftir að sakna bónusverslunarinnar sem var hérna á Nesinu, þangað til í síðustu viku. Núna þarf ég að keyra rúman kílómeter í búðina mína. Ein sem er í ömmuleik
Athugasemdir
Já spaugstofan fór ekki vel í alla x tendó hún sagði við mig eg ættla að byðja þá að gera grín af nauðgunum ,einhelti,heimilisofbeldi og svo nefndi hún eithvað meira svo segir hún þeir eru búnir að vera svo dugleigir að gera grín af veikindum annara.. koss og knús Allý
Alexandra Guðný Guðnadóttir, 3.2.2008 kl. 12:43
kvitt-kvitt og kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 3.2.2008 kl. 16:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.