4.2.2008 | 01:53
Mig langar svo til að fara á Þorrablót
Hérna á Nesinu verður ekki haldið þorrablót eins og undanfarin ár, ég hugsa að ég skreppi bara austur fyrir fjall. Ég hef farið á nokkur þorrablót á Laugalandi í Holtum, að vísu eru allavega 13-14 ár síðan ég fór þangað síðast. Ég ætla að hringja austur í vikunni og athuga hvenær það verður og ef ég sé mér fært fer ég þangað á þorrablót.
Þann 1. mars er árshátíð Suomi-Ísland félagsins og ég ætla að mæta í ár, ég missti af því í fyrra. Ég fór á hana fyrir 2 árum í fyrsta skipti og skemmti mér vel þar. Þar fæ ég tækifæri til að tala finnsku, og borða finnskan mat og drekka finnskt vín og kannski bjór, ég vann í happadrætti Suomi-Ísland félagsins þegar ég fór í fyrsta skipti á árshátíðina þeirra. Þetta eru einu skemmtanirnar sem ég sæki þegar ég get. Ein veisluglöð
Athugasemdir
Ja drifdu tig a torrablot, kvedja fra Mui Ne
Hólmdís Hjartardóttir, 4.2.2008 kl. 12:28
kvitt kvitt bestu kveðjur.
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 4.2.2008 kl. 16:09
Það er alsstaðar hægt að detta íða
Guðjón H Finnbogason, 4.2.2008 kl. 18:43
Góða skemmtun og takk fyrir bloggvináttu.
Halla Rut , 5.2.2008 kl. 01:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.