5.2.2008 | 02:20
Ég er þreytt
Ég er þreytt á pólitík, ég er þreytt á misvitrum pólitíkusum, sem aldrei hugsa um það hvað almenningi komi best, alltaf þetta eiginhagsmunapot. Ég er þreytt á því hvernig allskonar fólk sem bara öskrar nógu hátt, fær alla athyglina, meðan hinir þögli meirihlutinn, lætur allt yfir sig ganga. Ég er þreytt á þrýstihópum sem fá allt sem þeir vilja. Og ég er þreytt á því að heilindi virðast vera á undanhaldi, núna snýst allt um atkvæði og hvaða óskunda kjörnir menn/konur geti gert af sér. Ég er þreytt á því að vera undirmálsmanneskja, sem enginn pólitíkus nennir að vinna fyrir. Einstæðar mæður eru bara baggi á þjóðfélaginu sem er ekki viðbjargandi.
Ein þreytt á óreiðunni

Athugasemdir
Sammála
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 5.2.2008 kl. 18:48
Ég er líka sammála. Það er eins og þegar menn komast í pólitík þá hugsi þeir eingöngu um eiginn rass og komast ekki út fyrir hann.
Sigrún Óskars, 5.2.2008 kl. 22:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.