17.2.2008 | 02:13
Frídagurinn fór í barnagæslu
Laugardagar eru mínir uppáhaldsdagar, þá get ég gert það sem mig langar til. Í dag var ég að passa tvo dóttursyni mína, sem betur fer voru þeir báðir stilltir og prúðir hjá ömmu sinni. Ég eldaði saltkjöt og svið og kartöflumús, sem verður líka í matinn á morgun. Strákarnir hennar ömmu sinnar borðuðu saltkjötið með bestu lyst, en þeir vildu ekki smakka sviðin. Vinkona yngstu dóttur minnar var líka í heimsókn og fékk hún að smakka svið í fyrsta skipti, henni þótti sviðin góð. Í dag var aldeilis tekið til hendinni hérna hjá mér ég þvoði af rúmunum okkar og lagaði smá til. Þvílík framkvæmdagleði á frídeginum mínum.
Ein sem nennir
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.