19.2.2008 | 01:20
VÁ 2000 krónur á næsta ári
Við verðum rík þegar þessi rausnalega hækkun á persónuafslættinum kemur til framkvæmda. Ég á varla orð yfir þessari hækkun sem ríkisstjórnin gaf okkur verkalýðnum. Það voru ekki kosningarloforðin að þvælast fyrir stjórninni, þegar hún úthlutaði þessari smánarlegu hækkun. Svo er ég alveg rosalega hissa hvað verkalýðsforkólfarnir eru ánægðir með þessa nýju kjarasamninga. Mér finnst þetta ekki góðir kjarasamningar, fyrir þá lægslaunuðu. Fuss og svei.
Ein reið
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.