23.3.2008 | 02:12
Hyvää pääsiäistä teille kaikille!!
Gleðilega páska til ykkar allra. Ég varð nú að monta mig af finnskunni minni!! Ég á nú ekki gott annað kvöld þá þarf ég að vera í vinnunni á barnum. Vonandi verða áhrif fulla tunglsins í rénum, á páskadagskvöld. Annars á ég ekki von á góðu. Ég hef fundið fyrir þessari tunglsýki sem virðist hrjá fólk sérstaklega vikuna fyrir fullt tungl. Þá er eins og allir rugludallar Reykjavíkur sameinist um það að valda ónæði og vandræðum á börum og götum borgarinnar. Ein sem talar finnsku
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.