30.3.2008 | 02:45
Afslöppun og gleymska!
Bláa lónið er frábær staður til þess að slappa af og njóta lífsins. Ég fór þangað í annað skiptið á ævinni í dag og annað skiptið í þessum mánuði. Ég vildi bara að ég hefði farið þangað miklu fyrr. Ég, sú 18 ára og örverpið nutum lífsins í lóninu í dag. Aðalheiður sú 18 ára fékk slökunarnudd í Bláa lóninu í afmælisgjöf frá systur sinni og þótti henni nuddið frábært. Ég hefði ekki slegið hendinni á móti svona nuddi, vonandi kemur það seinna.
Ég fékk fréttir þegar ég kom heim úr Bláa lóninu!! Sem voru ekki góðar, pabbi minn og systir hringdu þegar ég var Bláa lóninu. Þau spurðu hvar ég væri og hvers vegna ég væri ekki komin í fermingarveisluna hjá frænda mínum. Er hægt að vera meira utan við sig, ég gleymdi fermingarveislunni. Ég hefði reyndar farið í þessa fermingarveislu á morgun, án símtalsins. Ég ruglaðist heldur betur, en ég man ekki eftir fermingu á laugardegi. Ég hef haft boðskortið á ískápnum mínum í tvær vikur og ekki tekið eftir hvenær veislan ætti að vera. Ein viðutan
Athugasemdir
He he, hér er önnur viðutan, ég kannast við þetta. En þú hefur farið tvisvar sinnum oftar en ég í Bláa Lónið, framtaksleysið er nefnilega líka að fara með mig. Ef ég hugsa aftur þá var Kringlan víst orðin þriggja ára þegar ég heimsótti hana fyrst. Svona er þetta bara. Sofa núna.
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD., 30.3.2008 kl. 03:25
Ja hérna
Hólmdís Hjartardóttir, 30.3.2008 kl. 04:23
Aldrei farið í Bláa lónið en gott að þið mæðgur gátuð slappað vel af þar en já ekki gott að gleyma svona en skil samt að þú hafir verið með sunnudags fermingu í huganum en það er nú þannig að sumir halda þessar veislur á laugardegi en ég hef ekki farið nema á sunnudegi en svona getur bara komið fyrir besta fólk hafðu ljúfan sunnudag
Brynja skordal, 30.3.2008 kl. 09:58
Jebb bláa lónið ég hef bara farið 2x og hitt kannast ég við að veera viðutan hehe kemur fyrir besta fólk.. koss og knús Allý
Alexandra Guðný Guðnadóttir, 30.3.2008 kl. 13:20
Innlitskvitt og kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 30.3.2008 kl. 15:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.